

N1 þvottastöðvar
N1 leitar að ábyrgum og lausnamiðuðum starfsmanni til að sinna umsjón, viðhaldi og þjónustu á þvottastöðvum fyrirtækisins. Um er að ræða starf með breytilegum vinnutíma.
Helstu verkefni
· Daglegt eftirlit með vélbúnaði, skynjurum og búnaði
· Áfylling efna og eftirlit með olíu-, sand- og olíugildrum
· Þrif á stöðvum, gólfum og brautum
· Regluleg þrif á vélbúnaði og húsnæði.
· Aðstoð við viðskiptavini og úrlausn ábendinga
· Viðgerðir og almennt viðhald á búnaði
Við leitum að einstaklingi sem:
· Er handlaginn og hefur áhuga á viðhaldi og tæknivinnu
· Vinnur sjálfstætt og sýnir frumkvæði
· Er lausnamiðaður og með góða þjónustulund
· Tekur ábyrgð og leggur metnað í snyrtilegt og vel unnið starf
· Góð íslenskukunnátta æskileg
· Er með gilt bílpróf
Hér færðu tækifæri til að taka virkan þátt í daglegum rekstri og tryggja að þvottastöðvar N1 standi ávallt undir væntingum viðskiptavina.
Fríðindi í starfi:
- Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
- Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagur Benónýsson hjá [email protected]
Umsóknarfrestur til og með 2.mars 2026.
Enska
Íslenska










