Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Framkvæmdastjóri viðskipta

Isavia leitar að leiðtoga til að gegna starfi framkvæmdastjóra viðskipta á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmdastjóri viðskipta ber ábyrgð á öllum viðskiptatekjum félagsins á Keflavíkurflugvelli og gegnir lykilhlutverki í að móta og þróa núverandi tekjur, nýjar tekjur og þjónustu og upplifun farþega. Um er að ræða tekjur, meðal annars af verslunar- og veitingarekstri, samgöngum, auglýsingum og fasteignum.

Framkvæmdastjóri ber jafnframt ábyrgð á markaðssetningu Keflavíkurflugvallar, samskiptum við flugfélög og að styðja við fjölgun flugtenginga til, frá og um tengistöðina á flugvellinum. Starfið krefst náins samstarfs innan flugvallarsamfélagsins og við ytri hagaðila.

Leitað er að framsýnum, árangursdrifnum og uppbyggilegum leiðtoga til að leiða og þróa viðskipti hjá rekstraraðila eins af lykilinnviðum landsins í alþjóðlegu starfsumhverfi.


Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Leiðtogahæfileikar og hæfni til að byggja upp og leiða öflugt teymi.
  • Umfangsmikil reynsla af stjórnunarstörfum með rekstrar- og tekjuábyrgð.
  • Reynsla af stefnumótun og innleiðingu stefnu.
  • Reynsla af samningaviðræðum og rekstri umfangsmikilla viðskiptasamninga.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og skýr árangursdrifin nálgun.
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og í Hafnarfirði

Isavia býður upp á vinnustað þar sem lögð er mikil áhersla á uppbyggilega fyrirtækjamenningu og fyrirmyndar aðstöðu fyrir starfsfólk.

Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar