

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica þjónar einstöku hlutverki í virðiskeðju íslenska heilbrigðiskerfisins, þjónustar heilbrigðisfyrirtæki og apótek og er miðpunktur í dreifingu lyfja-, heilsu- og lækningavara fyrir öflug markaðsfyrirtæki á borði við Vistor, Artasan, Fána, Medor auk fleiri innlendra og erlendra aðila í lyfjum og heilsuvörum. Þjónusta félagsins og sérhæfing nær til innkaupa, birgðastýringar, hýsingar, gæðamála, auk viðskiptaþjónustu og dreifingar.
Við höfum byggt upp sérhæfða þjónustu fyrir viðkvæmar vörur og allt kapp er lagt á faglega gæðastýringu og nákvæm vinnubrögð.Nýjum framkvæmdastjóra verður falið spennandi verkefni sem innifelur í senn stefnumótun, uppbyggingu á vöruhúsarekstri félagsins, rekstrarstýringu, viðskiptaþróun og áframhaldandi framþróun öryggis-, gæða og þjónustu.
Við horfum til aðila með áhuga á rekstri vöruhúsa og flutningamálum, sem hefur í fyrri störfum sýnt fram á sterka rekstrarhæfni og reynslu í stýringu aðfangakeðja. Viðkomandi þarf jafnframt að búa yfir kerfislegri hugsun til að bæta nýtingu, auka sjálfvirkni og nýta tækni til að efla þjónustu og samkeppnishæfni. Menntun á sviði viðskipta, verkfræði eða skyldum greinum er æskilegt.
Sömuleiðis skiptir miklu að viðkomandi hafi gott orðspor sem leiðtogi sem stuðlar að jákvæðri og faglegri fyrirtækjamenningu.
Hjá Distica starfa um 100 einstaklingar, flest innan vöruhúsa og við dreifingu og framfylgni þjónustustefnu, en önnur sinna gæðamálum, innkaupum, birgðastýringu og viðskiptaþjónustu.
Distica er dótturfélag Veritas og vinnur mjög náið með öðrum systurfélögum sínum sem byggja starf sitt á markaðssetningu, fræðslu, sölu og ýmsa þjónustu fyrir heilbrigðismarkaðinn. Félagið hefur sjálfstæða stjórn en heyrir undir samstæðu Veritas og forstjóra þess sem jafnframt er stjórnarformaður Distica.
Umsóknir óskast ásamt ferilskrá og kynningarbréfi í einu og sama skjalinu. Umsóknafrestur er til og með 15. febrúar og svörum við umsóknum jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristján Pétur Sæmundsson, [email protected] og Harpa Víðisdóttir, sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu, [email protected]
Menntun á sviði viðskipta, verkfræði eða skyldum greinum er æskilegt.
Enska
Íslenska










