
Umhverfis- og skipulagssvið
Á Umhverfis og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem eiga að auðga mannlífið í borginni.
Nánar má lesa um sviðið hér: https://reykjavik.is/umhverfis-og-skipulagssvid
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs býr yfir einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir og gegnir lykilhlutverki í því að gera Reykjavík að enn betri borg. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg.

Verkefnastjóri á deild byggingarmála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur auglýsir eftir verkefnastjórum til starfa á deild byggingarmála á skrifstofu skipulags- og byggingarmála. Um er að ræða fjölbreytt starf í skapandi og faglegu starfsumhverfi þar sem teymisvinna, nýsköpun og framsækni er höfð að leiðarljósi. Á skrifstofunni starfar kraftmikið teymi með brennandi áhuga á byggingarmálum og borgarþróun. Verkefnin eru fjölbreytt og snúa að umfjöllun byggingarleyfisumsókna, fyrirspurna ásamt yfirferð á aðaluppdráttum og öðrum hönnunargögnum. Við leitum að einstaklingum í teymið okkar sem hafa brennandi áhuga á byggingarmálum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirferð aðaluppdrátta, umsókna og fyrirspurna sem berast deildinni.
- Veita ráðgjöf og leiðbeiningar til fagfólks, hönnuða og almennings sem varða byggingarmál, byggingarleyfisumsóknir og yfirferð aðaluppdrátta sem leggja á fyrir afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og/eða fundi skipulagsráðs.
- Svara fyrirspurnum varðandi athugasemdir sem gerðar hafa verið við mál á afgreiðslufundum og leiðbeina viðskiptavinum embættisins eftir þörfum.
- Þátttaka í afgreiðslufundum byggingarfulltrúa, afgreiðsla mála á fundunum og vinna þeim tengdum.
- Ýmis verkefni tengd byggingarmálum borgarinnar sem falla undir verksvið skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í arkitektúr, byggingarfræði, tæknifræði eða verkfræði.
- Löggilding hönnuða á viðeigandi starfssviði.
- Reynsla í yfirferð og gerð aðaluppdrátta.
- Metnaður og vilji til að takast á við mismunandi, fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Skipulagshæfni, nákvæmni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Tölvufærni í notkun á algengum hugbúnaði Word, Excel og Outlook, skjalakerfum og geta til að tileinka sér notkun nýrra kerfa.
- Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri fjárfestinga / Capital Projects Specialist
Alcoa Fjarðaál

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Sérfræðingur í veghönnun
Vegagerðin

Viðskiptastjóri – Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið
Íslandsbanki

Verkefnastjóri flugvallarinnviða
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur eignastýringarkerfis
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur lagna- og loftræsikerfa
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í samningastjórnun (e. Contract Manager)
Nýr Landspítali ohf.

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum
Umhverfis- og skipulagssvið