
Alcoa Fjarðaál
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hóf starfsemi árið 2007. Fjarðaál er eitt af nútímalegustu og tæknilega fullkomnustu álverum heims og er fyrirmynd hvað varðar umhverfisvernd og jafnréttismál. Álverið er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári.
Álver Alcoa Fjarðaáls er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gildi okkar eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum. Við höfum stöðugar umbætur að leiðarljósi og leggjum áherslu á þátttöku allra í umbótavinnu. Við viljum líka hafa gaman í vinnunni og láta gott af okkur leiða í samfélaginu á Austurlandi.
Samkeppnishæf launakjör og aðbúnaður til fyrirmyndar
Fjarðaál greiðir samkeppnishæf laun og aðbúnaður starfsmanna er til fyrirmyndar. Við fáum meðal annars ókeypis akstur til og frá vinnu og frítt fæði í frábæru mötuneyti. Við erum með öflugt mannauðsteymi og höfum okkar eigin heilsugæslu og aðgang að Velferðarþjónustu Heilsuverndar.
Fjölbreytt störf og mikil tækifæri til starfsþróunar
Fastráðnir starfsmenn Fjarðáls eru um 540 og þar að auki starfa um 250 manns á vegum annarra fyrirtækja í álverinu. Störfin hjá Fjarðaáli eru afar fjölbreytt og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Móðurfélagið Alcoa Corporation er leiðandi í áliðnaði á heimsvísu og þar eru líka tækifæri til starfsþróunar.

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál leitar að metnaðarfullum einstakling í starf skipuleggjanda viðhalds. Starfið felur í sér að skipuleggja verkefni, varahluti, efni, verkfæri, búnað, öryggisleyfi og skjöl. Skipuleggjandi viðhalds ber ábyrgð á skipulagsferlinu og tryggir tímanlega framvindu viðhaldsbeiðna, auk þess að vinna náið með leiðtogum viðhalds, rekstrarstjórum, framkvæmdarstjórum og tæknistjórum til að viðhalda skilvirkni og gæðum.
Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við alla skipuleggjendur, aðstoða við skipulagsverkefni, afla tilboða og útbúa beiðnir. Einnig verður gert ráð fyrir að hann/hún geti sinnt afleysingum fyrir aðra skipuleggjendur vegna fjarvista og orlofs, eftir því sem aðstæður leyfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja viðhaldsvinnu í nánu samstarfi við framleiðslu- og viðhaldsteymi
- Áætla tíma, varahluti og annað sem þarf til að leysa viðhaldsvinnu af hendi
- Tryggja að viðhaldsverk séu unnin með gæði, hagkvæmni og öryggi að leiðarljósi
- Gera innkaupabeiðnir og leita tilboða í varahluti og viðhaldsverk
- Halda utan um viðaldsgögn til frekari greiningar að verki loknu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun eða önnur hagnýt menntun er kostur
- Reynsla af skipulagningu viðhalds og áætlanagerð er æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
- Sterk öryggisvitund og lipurð í samskiptum
Fríðindi í starfi
- Íþrótta og meðferðastyrkir
- Mötuneyti
- Rútur frá helstu byggðarkjörnum
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur21. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hraun 1, 731 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri fjárfestinga / Capital Projects Specialist
Alcoa Fjarðaál

Viltu vinna með okkur í sumar?
Set ehf. |

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica

Söluráðgjafi varahluta
Fastus

Starfsmaður í viðhaldsdeild
Center Hotels

Verkefnastjóri á deild byggingarmála
Umhverfis- og skipulagssvið

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Sérfræðingur í veghönnun
Vegagerðin

Viðskiptastjóri – Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið
Íslandsbanki

Skemmtileg störf í Garðyrkjudeild
Þjónustustöð Mosfellsbæjar

Flokkstjóri í garðyrkjudeild
Þjónustustöð Mosfellsbæjar

Vélamaður í þjónustumiðstöð
Garðabær