
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
Þjónustustöð Mosfellsbæjar sér um alla almenna þjónustu við bæjarbúa á sviði tækni- og umhverfismála, svo sem snjóruðning, viðhald og rekstur gatna, holræsa, veitna, umferðarmannvirkja og opinna svæða. Þjónustustöð sér einnig um viðhald á fasteignum bæjarins auk rekstur stærri tækja og bíla.
Undir starfsemi Mosfellsveitna heyra þau verkefni sem snúa að málefnum vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu innan Mosfellsbæjar. Verkefnin eru eins fjölbreytt og þau eru mörg og snúa meðal annars að nýlögnum heimæða hita- og vatnsveitu ásamt almennu eftirliti, viðhaldi og endurnýjun veitumannvirkja.

Skemmtileg störf í Garðyrkjudeild
Skemmtileg störf í Garðyrkjudeild hjá Mosfellsbæ.
Garðyrkjudeild Mosfellsbæjar sér um ýmiss fjölbreytt og skemmtileg verkefni á opnum svæðum. Á meðal verkefna er hreinsun og viðhald opinna svæða. Hreinsun skóla- og leikskólalóða, skipulag og plöntun sumarblóma, trjáa og runna, grassláttur og önnur tilfallandi verkefni.
Um er að ræða starf á tímabilinu 1.júni - 7.ágúst 2026.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lágmarksaldur er 17 ára á árinu
- Áhugi á garð- og útivinnu er nauðsynlegur
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Dugnaður, stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Ökuréttindi er kostur
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. mars 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Völuteigur 15, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiStundvísi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Þakdúkalagnir/Roofing
Þakplan ehf.

Hlauparar - Terra Akureyri - sumarvinna
Terra hf.

Hlaupari - Vestmannaeyjar
Terra hf.

Flokkstjóri í Þjónustumiðstöð
Sumarstörf - Kópavogsbær

Tækjamenn – verkamenn í veitu verkefnum
ÍAV

Lagerstarfsmaður
ÍAV

Starfsfólk í Straumsvík
HRT þjónusta ehf.

Óska eftir að ráða inn handlaginn aðstoðarmann
NPA miðstöðin

Sölufulltrúi í Blómval á Akureyri
Blómaval

Borgarnes: Sumarstarfsfólk óskast (Garbage collector/C Driver)
Íslenska gámafélagið ehf.

Leiðbeinandi fyrir starfsfólk með skerta starfsgetu - sumarstarf
Umhverfis- og skipulagssvið