Malbikstöðin
Malbikstöðin
Malbikstöðin

Starfsmaður í framleiðslustöð

Malbikstöðin óskar eftir að ráða öflugan og lausnamiðaðan einstakling í fjölbreytt og krefjandi starf við framleiðslu. Viðkomandi þarf að búa yfir góðu verkviti og njóta þess að sinna fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Akstur og notkun vinnuvéla, brjóts- og mulningstækja
  • Almennt viðhald
  • Almenn notkun verkfæra
  • Almenn þrif

Hæfniskröfur

  • Vinnuvélaréttindi
  • Reynsla af akstri og notkun vinnuvéla
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Góð tæknileg færni og vilji til að læra
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur
  • Vinnufatnaður
  • Matur

Um Malbikstöðina

Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugumýri 26
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SmurþjónustaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar