BRP - Ellingsen
BRP - Ellingsen
BRP - Ellingsen

Standsetningar og viðgerðir

BRP-Ellingsen leitar að drífandi og skemmtilegum einstakling sem vill ganga til liðs við öflugt teymi á þjónustuverkstæði umboðsins að Vínlandsleið 1 í Grafarholti.

Starfið felur í sér standsetningar, breytingar og léttar viðgerðir á ýmsum tækjum sem BRP-Ellingsen selur, svo sem buggý-bílum, vélsleðum, fjórhjólum og mótorhjólum.

Um er að ræða fullt starf, eða sumarstarf með möguleika á áframhaldandi ráðningu í haust í fullu- eða hlutastarfi.

Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu af léttum viðgerðum og búi yfir grundvallar skilning á vélknúnum ökutækjum.


Vinnutími er 08:00 til 17:00 alla virka daga.

BRP-Ellingsen er dreifingaraðili Bombardier Recreational Products á Íslandi. BRP framleiðir vélsleða, fjórhjól, sæþotur, buggybíla og fleira undir merkjum Lynx, Ski-Doo, Can-Am og Sea-Doo. Starfsemi félagsins felst í sölu og þjónustu við öll merki BRP ásamt öðrum vörum, auka- og fylgihlutum fyrir vélknúna útivist.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Standsetning á vélsleðum, buggý bílum, sæþotum, mótorhjólum og fjórhjólum.
  • Léttar viðgerðir og breytingar á fyrrnefndum tækjum.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðgerðum vélknúinna tækja.
  • Gott tölvulæsi.
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
  • Góð tök á íslensku og/eða ensku skilyrði. 
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vínlandsleið 1, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar