
Héðinshurðir ehf
Héðinshurðir ehf er dótturfyrirtæki Héðins hf og hefur verið með iðnaðar- og bílskúrshurðir á boðstólnum í áraraðir og áunnið sér traust viðskiptavina fyrir vandaðar hurðir sem standast sveiflukennt íslenskt veðurfar með glæsibrag.
Starfsmenns Héðinshurða veita framúrskarandi þjónustu og sjá m.a. um sölu, uppsetningar, viðhald og viðgerðir á iðnaðar- og bílskúrshurðum.

Þjónustumaður – uppsetningar og þjónusta
Vegna aukinna verkefna leitum við að öflugum og ábyrgum þjónustumanni til framtíðarstarfa við uppsetningar, viðhald og þjónustu á bílskúrshurðum, iðnaðarhurðum og gluggalausnum.
Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf sem fer að mestu fram á vettvangi hjá viðskiptavinum. Þú vinnur náið með reyndu teymi og færð góða þjálfun og stuðning við innleiðingu í starfið.
Hjá Héðinshurðum leggjum við áherslu á fagmennsku, traust og góða þjónustu – bæði gagnvart viðskiptavinum og hvert öðru.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetningar á bílskúrshurðum, iðnaðarhurðum og gluggum
- Viðgerðir, viðhald og þjónusta á hurðum og tengdum búnaði
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini á vettvangi
- Ýmis almenn þjónustu- og uppsetningarverk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnaðarmenntun eða sambærileg reynsla er æskileg
- Bílpróf (B) er skilyrði
- Sjálfstæð, ábyrg og lausnamiðuð vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og góð þjónustulund
- Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
- Áhugi á tæknilegum lausnum og verklegri vinnu
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Þjálfun og stuðning frá reynslumiklum sérfræðingum
- Gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Matarstyrk
- Vinnufatnað og vinnusíma
- Frábær starfsandi og sterk liðsheild
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Íshella 10, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sláttumenn / Garðyrkja / Hópstjórar - Sumarstarf
Garðlist ehf

Sláttumenn á Akranesi - Sumarstarf
Garðlist ehf

Standsetningar og viðgerðir
BRP - Ellingsen

Verkamenn í lóðabreytingum
Garðaþjónusta Íslands ehf.

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Smiðir / Carpenters Reyðarfjörður
VHE

Suðumenn / Welders
VHE

Pípulagningarmaður á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Vélvirki eða vélstjóri á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Hlauparar - Terra Akureyri - sumarvinna
Terra hf.

Flokkstjóri við Vinnuskóla
Sumarstörf - Kópavogsbær