NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir að ráða inn handlaginn aðstoðarmann

Ég er fyrrum iðnaðarmaður sem hefur alla tíð haft gaman af verklegum verkefnum og fjölbreyttu lífi. Vegna hrörnunarsjúkdóms sem hefur haft áhrif á líkamlega færni mína þarf ég nú aukinn stuðning í daglegu lífi. Þrátt fyrir breyttar aðstæður legg ég mikla áherslu á að halda áfram að vera virkur á minn hátt og taka þátt í verkefnum og daglegu lífi eins og kostur er.

Ég leita því að traustum, sveigjanlegum og jákvæðum einstaklingi, 30 ára eða eldri, sem getur starfað með mér og veitt mér þann stuðning sem þarf til þess að daglegt líf gangi sem best.

Helstu verkefni fela í sér:

  • Aðstoð við daglegar athafnir, svo sem klæðnað og persónulega umhirðu
  • Koma mér á milli staða, því er mikilvægt að þú sért öruggur bílstjóri og treystir þér vel til að aka á stórum bíl og við ólíkar aðstæður.
  • Þátttöku í garðyrkju, smíðum og öðrum verklegum verkefnum (t.d. einföld smíði eða viðhald)
  • Vera með góður félagsskapur og stuðningur
  • Líkamlega aðstoð eftir þörfum, t.d. að lyfta hlutum eða hjálpa mér að komast milli staða (starfið getur verið líkamlega krefjandi)

Vinnutími og staðsetning:

Vinnutími: Dagvaktir frá klukkan 9-17 í um 80% stöðu, með möguleikanum á auka vöktum.

Staðsetning: Kópavogur

Hæfniskröfur:

  • Bílpróf, reykleysi og hrein sakaskrá (skilyrði)
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta (skilyrði)
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
  • Örugg aksturshæfni
  • Handlaginn og stakk í búinn til þess að aðstoða við fjölbreytt verk
  • Hæfni til þess að tileinka ser nýja hluti fljótt og aðlagast breyttum aðstæðum
  • Góð samskiptafærni og vilji til að vinna eftir leiðbeiningum og virða þarfir mínar og óskir

Ef þú ert jákvæður, úrræðagóður og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni í nánu samstarfi, þá gæti þetta starf hentað þér vel.

Auglýsing birt9. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar