Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum

Skrifstofa fjármála á umhverfis- og skipulagssviði óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf sérfræðings við áhættustýringu og kostnaðargreiningu. Skrifstofan fer með leiðandi hlutverk í gerð og innleiðingu verkferla er varða fjármál og eftirfylgni þeirra. Styður við fjármál, innkaup og áhættustýring sviðsins svo unnt sé að skapa öruggt og traust fjárhagslegt starfsumhverfi. Veitir stjórnendum og starfsfólki upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð varðandi fjármál og innkaup svo sem áætlanagerð, fjárhagsbókhald, verkbókhald, innheimtu, uppgjör, innkaup, samningsstjórnun, áhættustýringu og sinna innra eftirlit eins og við á. Um nýtt starf er að ræða, næsti yfirmaður er deildarstjóri innkaupa og samningsstjórnunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hafa virkt eftirlit með áhættum í rekstri sviðsins.
  • Sinna kostnaðargreiningu m.t.t. samningsbundinna verkefna og útboðsáætlana.
  • Utanumhald áhættustýringar á sviðinu, þ.m.t. frávikaskráningu og gerð rótargreininga.
  • Fylgjast með kostnaði og áhættu vegna útboðsskyldra samninga.
  • Byggja upp miðlægan gagnagrunn og tryggja að kostnaðaráætlanir séu uppfærðar og rekjanlegar.
  • Gerð verkferla og innleiða verklag sem styður við framkvæmd innan sviðsins.
  • Veita ráðgjöf og hafa virkt eftirlit í samræmi við reglur borgarinnar.
  • Önnur verkefni tengd fjármálum og daglegum rekstri skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi á s.s. í viðskiptafræði, hagfræði, verk- eða tæknifræði.
  • Framhaldsmenntun æskileg. 
  • Þekking og reynsla á sviði kostnaðareininga og áhættustýringar.
  • Reynsla af opinberum innkaupum kostur.
  • Framúrskarandi samskipta og samstarfshæfni, drifkraftur, frumkvæði og metnaður.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framsýni og lausnarmiðuð hugsun.
  • Góð færni í greiningu tölfræðiupplýsinga og framsetningu flókinna gagna.
  • Góð almenn tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi sem stjórntæki.
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti og geta til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
  •  Tungumálaviðmið: C1 í íslensku og B2 í ensku skv. evrópska tungumálarammanum.
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar