
Umhverfis- og skipulagssvið
Á Umhverfis og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem eiga að auðga mannlífið í borginni.
Nánar má lesa um sviðið hér: https://reykjavik.is/umhverfis-og-skipulagssvid
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs býr yfir einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir og gegnir lykilhlutverki í því að gera Reykjavík að enn betri borg. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg.

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun
Skrifstofa fjármála á umhverfis- og skipulagssviði óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf sérfræðings í opinberum innkaupum og samningsstjórnun. Skrifstofan fer með leiðandi hlutverk í gerð og innleiðingu verkferla er varða fjármál og eftirfylgni þeirra. Styður við fjármál, innkaup og áhættustýring sviðsins svo unnt sé að skapa öruggt og traust fjárhagslegt starfsumhverfi. Veitir stjórnendum og starfsfólki upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð varðandi fjármál og innkaup svo sem áætlanagerð, fjárhagsbókhald, verkbókhald, innheimtu, uppgjör, innkaup, samningsstjórnun, áhættustýringu og sinna innra eftirliti. Um nýtt starf er að ræða, næsti yfirmaður er deildarstjóri innkaupa og samningsstjórnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa verklag er snýr að innkaupum, þ.m.t samningsgerð og samningsstjórnun.
- Halda utan um útboðsáætlun sviðsins. Rýna samninga og tryggja að farið sé eftir samningum við framkvæmd innkaupa.
- Taka þátt í þróun og uppfærslu staðlaðra samningsskilmála.
- Halda utan um skráningu samninga sviðsins og styðja við eftirlit.
- Aðstoðar starfsfólk og stjórnendur við samningsstjórnun á sviði opinberra innkaupa.
- Vera ráðgefandi varðandi val á innkaupaleið og leiðbeina stjórnendum og starfsfólki þar um.Önnur verkefni tengd fjármálum og daglegum rekstri skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. lögfræði, viðskiptafræði, verkfræði.
- Framhaldsmenntun æskileg.
- Þekking og reynsla af samningsstjórnun á sviði verkframkvæmda, þjónustu- og vörukaupa.
- Þekking og reynsla af greiningarvinnu í fjölbreyttum rekstri.
- Þekking á opinberum innkaupum kostur.
- Framúrskarandi samskipta og samstarfshæfni, drifkraftur, frumkvæði og metnaður.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framsýni og lausnarmiðuð hugsun.
- Góð færni í greiningu og framsetningu flókinna gagna.
- Góð almenn tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi sem stjórntæki.
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti og geta til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
- Tungumálaviðmið: C1 í íslensku og B2 í ensku skv. evrópska tungumálarammanum
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn

Sérfræðingur í samningastjórnun (e. Contract Manager)
Nýr Landspítali ohf.

Sérfræðingur á fjármálasviði
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Spennandi störf við skatteftirlit
Skatturinn

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í þróun mannvirkjaskrár
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Viltu beisla vindinn? Verkefnastjóri í þróun vindorku
Landsvirkjun

Vöru- og verkefnastjóri húðmeðferða
Húðlæknastöðin

Vörumerkjastjóri
Nathan hf.

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Veitustjóri Bláskógaveitu
Bláskógabyggð

Ábyrgðaraðili verkskipulags
Orka náttúrunnar