Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Aðalbókari á fjármálasviði Origo

Origo leitar að öflugum aðalbókara til starfa á fjármálasviði

Origo er þjónustu- og þekkingarfyrirtæk sem vinnur með fyrirtækjum að því að ná forskoti í breyttum heimi þar sem tæknin skiptir öllu máli. Á fjármálasviði Origo starfar samhentur hópur sérfræðinga sem styður við fjármál og rekstur Origo auk annarra félaga í eigu Skyggnis eignarhaldsfélags. Við leitum að reynslumiklum bókara sem hefur gott auga fyrir smáatriðum, er skipulagður og vill taka virkan þátt í að þróa fjárhagsferla hjá spennandi fyrirtæki í kviku umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegt bókhald

  • Yfirsýn fjárhagsferla og bókhalds

  • Þátttaka i mánaðaruppgjörum, ársuppgjörum og endurskoðun

  • Leiða umbætur, þróun og sjálfvirknivæðingu bókhaldsferla

  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi t.d. í viðskiptafræði, reikningsskilum og endurskoðun eða sem viðurkenndur bókari

  • Mikil reynsla af reikningshaldi og uppgjörsvinnu nauðsynleg

  • Kunnátta og reynsla af Business Central er mikill kostur

  • Nákvæmni, jákvæðni og rík þjónustulund

  • Lausnamiðuð hugsun og áhugi á umbótum

Fríðindi

  • Að vera hluti af frábæru teymi

  • Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki

  • Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf

  • Vinnustaður sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti

  • Hvatningu til að þróast í starfi og efla þekkingu

  • Ýmis fríðindi og styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.

Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.

Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar