
Icepharma
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum lyfja-, heilbrigðis- og neytendamarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 110 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og þjónustu.
Icepharma er heilsumiðaður vinnustaður sem stuðlar að góðri líkamlegri, félagslegri og andlegri heilsu starfsmanna.
Við leggjum áherslu á metnað, frumkvæði, gleði og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Icepharma er hluti af fyrirtækjasamstæðunni Ósar - lífæð heilbrigðis hf. þar sem samtals starfa um 220 manns. www.osar.is

Framkvæmdastjóri Heilsu- og íþróttasviðs
Icepharma leitar að kraftmiklum og árangursdrifnum leiðtoga
Helstu verkefni og ábyrgð
Framkvæmdastjóri Heilsu- og íþróttasviðs er drífandi einstaklingur sem brennur fyrir að leiða öflugt teymi í lifandi samkeppnisumhverfi, með stöðugar umbætur og vöxt að leiðarljósi.
Einingin ber ábyrgð á breiðu úrvali vörumerkja á heildsölumarkaði, allt frá alþjóðlegu vörumerkjunum NIKE, Speedo og NOW, til eigin vörumerkja á borð við MUNA og H verslun. Teymið samanstendur af 40 starfsmönnum í sterkri og samhentri liðsheild. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra Icepharma og á sæti í framkvæmdastjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af stjórnun stærri teyma og mannaforráðum
- Víðtæk rekstrarþekking og reynsla af greiningum og áætlanagerð
- Þekking og reynsla á neytendavörumarkaði
- Reynsla af stefnumótun og að leiða breytingar á flóknum markaði
- Haldgóð reynsla af samningagerð
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og tengslamyndun
Vinnustaðurinn
- Mötuneyti í hæsta gæðaflokki
- Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
- Áhersla er lögð á fræðslu starfsmanna
- Skýr starfsmannastefna um jákvæð samskipti og vinnustaðamenningu
- Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum
- Líkamsræktarstyrkir
- Öflugt starfsmannafélag og sjálfsprottnir starfsmannahópar fyrir ýmis áhugamál
- Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 13/Krókh 14 13R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)




