

Rafmiðlun leitar að rafvirkjum – viltu slást í hópinn okkar?
Rafmiðlun óskar eftir metnaðarfullum og duglegum rafvirkjum til að bætast í öflugan hóp okkar. Vegna góðrar verkefnastöðu leitum við að fleiri rafvirkjum til starfa.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni á höfuðborgarsvæðinu þar sem reynsla og fagmennska fá að njóta sín.
Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, vandvirkur og geta unnið sjálfstætt, en einnig starfað vel í teymi.
Ert þú metnaðarfullur fagmaður með reynslu í rafvirkjun og vilt þróast í starfi?
Þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig!
Sendu ferilskrá og við höfum samband.
- Er samviskusamur, lausnamiðaður og vinnur vel í teymi
- Vill vaxa í starfi og taka þátt í uppbyggingu
- Hefur ríka öryggisvitund
- Er stundvís og áreiðanlegur
- Hefur reynslu af rafvirkjun
- Er með sveinspróf í rafvirkjun
- Er með bílpróf
- Minni vinnuvélaréttindi eru kostur
- Hefur íslensku- og/eða enskukunnáttu
- Vinnufatnaður
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Íþróttastyrkur
Í anda jafnréttisstefnu Rafmiðlunar hvetjum við öll til að sækja um, óháð kyni.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, þó að umsóknarfrestur sé ekki liðinn.
Enska
Íslenska










