

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra launa- og kjaramála. Starfið heyrir undir forstöðumann fjármála og greiningar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Verkefnastjóri launa- og kjaramála ber ábyrgð á og sinnir allri almennri launavinnslu háskólans, ásamt því að vinna að úrlausn ýmissa mála er tengjast launa- og kjaramálum. Í því felst m.a. gerð ráðningarsamninga, stigamat starfa, utanumhald um kennslu- og rannsóknarskyldu kennara, yfirvinnu og orlof auk útreikninga á ýmsum aukagreiðslum.
Verkefnastjórinn sinnir einnig upplýsingagjöf og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks og tölulegri úrvinnslu sem tengist launa- og kjaramálum. Verkefnastjórinn tekur þátt í úrlausn álitamála og endurskoðun stofnanasamninga með þátttöku í samstarfsnefndum stéttarfélaga starfsfólks og HA. Verkefnastjórinn sér um að meta störf í stoðþjónustu og stjórnsýslu og kemur að vinnu við jafnlaunavottun.
- Háskólapróf og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Góð almenn tölvukunnátta og talnagleggni mikilvæg.
- Mjög gott vald á tölulegri úrvinnslu í Excel mikilvægt.
- Þekking á kjarasamningum og úrvinnslu þeirra kostur.
- Þekking og reynsla af launakerfi ríkisins Oracle eða sambærilegu kerfi æskileg.
- Þekking á stjórnsýslulögum og starfsemi háskóla æskileg.
- Gerð er krafa um framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og ríka ábyrgðarkennd ásamt þjónustulund, jákvætt og lausnamiðað hugarfar, sjálfstæði, drifkraft og frumkvæði í starfi, góða skipulagshæfileika, vönduð vinnubrögð og góða aðlögunarhæfni.
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli er mikilvægt.
- Gerð er krafa um vammleysi og gott orðspor.
Íslenska
Enska










