
Stilling
Stilling hf. var stofnuð 17. oktober 1960 sem sérhæft hemlaverkstæði. Stofnendur ásamt Bjarna Júlíussyni voru Þórður Júlíusson verkfræðingur sem átti upphaflega hugmynd að fyrirtækinu, Magnús Baldvinsson kenndur við í MEBA, Óskar Ólafsson vélstjóri og Benedikt Magnússyni kenndur við BM Vallá. Í dag er fyrirtækið leiðandi í sölu á varahlutum og aukahlutum í bíla. Stilling rekur fimm öflugar verslanir víðsvegar um landið en einnig er fyrirtækið með sérstakan gagnagrunn sem verslanir og bílaumboð geta pantað úr á heimasíðu Stillingar hf.
Stilling er eitt elsta varahlutafyrirtæki á Íslandi í dag.
Stilling er rótgróið fjölskyldufyrirtæki og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu.
Stilling kappkostar að veita viðskiptavinum sínum um land allt vandaða og góða þjónustu. Fyrirtækið er með verslanir í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og á Akureyri. Þá er hægt að panta vörur úr gagnagrunni okkar af heimasíðunni Partanet.is Gagnagrunnurinn inniheldur vörur frá yfir 400 framleiðendum sem gerir viðskiptavinum kleift að finna réttan varahlut á auðveldan hátt. Pöntun á vöru er einstaklega auðveld, viðskiptavinurinn slær inn skráningarúmer bifreiðarinnar og finnur þá gagnagrunnurinn þann varahlut sem passar fullkomlega.

Hefur þú þekkingu og áhuga á bílum?
Stilling leitar að öflugum einstaklingi í teymi Þjónustuvers. Við leggjum áherslu á gott vinnuumhverfi og góðan vinnuanda. Ef þú hefur þekkingu og áhuga á bílum og varahlutum þá skaltu ekki hika við að sækja um starfið.
Vinnutími er frá kl: 8-17 virka daga
Hvetjum öll kyn til að sækja um
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tryggja viðskiptavinum okkar bestu mögulega þjónustu og afgreiðslu
- Símsvörun og samskipti í gegnum tölvupóst
- Afgreiðsla fyrirspurna og almenn þjónusta við viðskiptavini
- Skráning og eftirfylgni pantana
- Tilfallandi afleysingar í verslunum Stillingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptarhæfni og þjónustulund
- Þekking og/eða áhugi á bílum og varahlutum
- Gott vald á íslenskri tungu og geta skrifað málfræðilega réttan texta.
- Góð enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af afgreiðslu á varahlutum eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
Auglýsing birt3. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFljót/ur að læraJákvæðniSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi á skrifstofu félagslegs húsnæðis
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Sumarstarf - Akstursstýring
Torcargo

Sumarstarf á Þjónustusviði - Farmskrárfulltrúi
Torcargo

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Landspítali

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Óskum eftir öflugum liðsauka í móttöku
Vinnuvernd ehf.

Sumarstarf á skrifstofu
Hreinir Garðar ehf

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Þjónustufulltrúi
Norðurorka hf.