

Hefur þú áhuga á að efla almannavarnir ?
Dómsmálaráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi á skrifstofu löggæslumála. Skrifstofan hefur umsjón með málaflokkum er varða almannaöryggi og öryggismál en í því felast málefni löggæslu, landhelgisgæslu, almannavarnir, áfallaþol ásamt leit og björgun.
Við leitum að sérfræðingi sem hefur metnað til að læra, þróast í starfi og takast á við áskoranir. Verkefnin eru fjölbreytt og lærdómsrík þar sem áhersla er lögð á stefnumótun almannavarna og áfallaþols og úrlausn mála sem tengjast þeim verkefnum hjá ráðuneytinu. Jafnframt er lögð áhersla á öflugt samstarf við þá fjölbreyttu aðila sem koma að almannavörnum og áfallaþoli.
-
Grunn- eða meistaranám sem nýtist í starfi.
-
Þekking og reynsla á verkefnum almannavarna og/eða áfallaþols er kostur.
-
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
-
Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
-
Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Íslenska










