
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Mannauðs- og starfsumhverfissvið hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar og styður við stefnu og megináherslur borgaryfirvalda.
Starfsfólk sviðsins hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd mannauðsstefnu, tryggir samræmi í framkvæmd og veitir stjórnendum ráðgjöf. Auk þess annast sviðið mannauðsþjónustu fyrir miðlæga stjórnsýslu í Ráðhúsi og annast gerð kjarasamninga. Auk þess leggur sviðið ríka áherslu á stöðugt og gott samstarf við stjórnendur og mannauðsþjónustu sviða með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði þjónustunnar og leggja grunn að góðri vinnustaðamenningu.

Sumarstarf í launaráðgjöf
Mannauðs- og starfsumhverfissvið Reykjavíkurborgar leitar að þjónustulunduðum og nákvæmum háskólanema í sumarstarf á launaskrifstofu.
Launaskrifstofan sinnir launavinnslu fyrir Reykjavíkurborg og gegnir lykilhlutverki í að tryggja rétta, örugga og skilvirka meðhöndlun launa- og launatengdra gagna.
Starfið veitir góða innsýn í mannauðs- og launamál í stærsta sveitarfélagi landsins og hentar vel námsmanni sem hefur áhuga á stjórnsýslu, mannauðsmálum og launatengdri vinnslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og vinnsla launagagna
- Vistun gagna í stafrænum skjalaskáp
- Útgáfa starfsvottorða
- Önnur tilfallandi verkefni tengd launa- og mannauðsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf og/eða sambærileg menntun
- Nám á háskólastigi í viðskiptafræði, mannauðsstjórnun eða skyldum greinum er kostur
- Reynsla af tengdum verkefnum er kostur
- Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar og lipurð í samskip
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi á skrifstofu félagslegs húsnæðis
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Sumarstarf - Akstursstýring
Torcargo

Sumarstarf á Þjónustusviði - Farmskrárfulltrúi
Torcargo

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Landspítali

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Óskum eftir öflugum liðsauka í móttöku
Vinnuvernd ehf.

Sumarstarf á skrifstofu
Hreinir Garðar ehf

Hefur þú þekkingu og áhuga á bílum?
Stilling

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf