

Þjónustu- og sölufulltrúi hjá Myigloo og Leiguskjóli
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur hjá Myigloo og Leiguskjóli. Við erum í stöðugum vexti og vantar öflugan liðsmann sem hefur bæði brennandi áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu og getu til að selja vörur okkar þegar við á.
Markmið okkar er að gera leigumarkaðinn einfaldari, öruggari og gagnsærri fyrir bæði leigusala og leigjendur. Sem þjónustu- og sölufulltrúi spilar þú lykilhlutverk í að tryggja að viðskiptavinir okkar fái bestu mögulegu upplifun af þjónustunni okkar.
Þjónusta í síma og tölvupósti þar sem þú aðstoðar viðskiptavini. Greinir og leysir fljótt og örugglega úr áskorunum viðskiptavina o.fl. sem tengist þjónustu við viðskiptavini okkar.
-
Rík þjónustulund og reynsla af þjónustustörfum.
-
Söluhæfileikar og reynsla af sölustörfum er kostur.
-
Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar.
-
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
-
Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
-
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og færni til að halda ró sinni undir álagi.
Íslenska
Enska










