
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Hópstjóri þjónustuvers
Þjónustuver Kópavogsbæjar sinnir móttöku fyrir íbúa, símsvörun og margvíslegum verkefnum í samvinnu við annað starfsfólk bæjarins. Þjónustuverið kappkostar að veita stofnunum bæjarins og íbúum eins góða þjónustu og mögulegt er. Sú þjónusta er afar fjölbreytt, enda heyra stórir málaflokkar undir bæjarfélagið.
Hópstjóri þjónustuvers sinnir móttöku og almennri þjónustu við þjónustunotendur, símsvörun og upplýsingamiðlun fyrir bæjarskrifstofur Kópavogs í samræmi við hlutverk þjónustuvers. Hópstjóri verkstýrir starfsfólki þjónustuvers, mannar vaktir og skipuleggur dagleg verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta í afgreiðslu, móttaka og leiðbeiningar til þjónustunotenda.
- Skipulagning daglegra verkefna í þjónustuveri. Dagleg mönnun vakta, tímaskráning og verkstýring.
- Upplýsingamiðlun og þjónusta til þjónustunotenda, starfsfólks og ytri aðila.
- Uppfærsla á þjónustutengdu efni á ytri vef Kópavogsbæjar. Aðstoð við rafrænar umsóknir og skráningar.
- Þjálfun og stuðningur við þjónustufulltrúa. Þátttaka í ráðningum í þjónustuveri.
- Eftirlit með þjónustugæðum og innleiðing umbóta.
- Tekur virkan þátt í þróun þjónustu og aukinni sjálfvirknivæðingu verkefna.
- Gagnavinnsla og skýrslugerð. Þar á meðal skráningar og skönnun gagna, teikninga og umsókna.
- Þátttaka í reglubundinni uppfærslu gæðaskjala (verkferlum, verklagsreglum og vinnulýsingum) sem undir starfsemina heyra.
- Innkaup og samþykkt reikninga.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
- Hæfni til að verkstýra teymi og stjórna verkefnum.
- Stjórnunarreynsla er skilyrði.
- Mjög góð skipulagsfærni og hæfni til að hafa yfirsýn.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Góða almenna tölvufærni í veflausnum og MS Office.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta áskilin. Þekking á öðrum tungumálum kostur.
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
36 tíma vinnuvika.
Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur10. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Sumarstarf á húsnæðisviði HMS: Lán og stofnframlög
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sumarstarf á húsnæðisviði HMS: Eftirlit og innheimta
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Er Garðabær með draumastarfið þitt í sumar?
Garðabær

Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Vinnueftirlitið

POS Customer Support - Summer Position
Rapyd Europe hf.

Tesla Delivery Advisor - Reykjavik
Tesla

Sumarstarf í þjónustumiðstöð - Hraunvangur
Hrafnista

Féhirðir á Sauðárkróki
Landsbankinn

Þjónustufulltrúar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Join our fantastic team at Perlan!
Perlan

Þjónustufulltrúi - Síminn Pay
Síminn Pay

Þjónustufulltrúi - Móttaka
Icetransport