Veitur
Veitur
Veitur

Svæðisfulltrúi

Vilt þú taka þátt í að skapa jákvæða upplifun viðskiptavina í einu stærsta þjónustufyrirtæki landsins?

Veitur leita að ábyrgum og lausnamiðuðum svæðisfulltrúa sem verður lykilaðili í þjónustu við samfélagið. Svæðisfulltrúi starfar fyrir alla miðla á tilteknu starfssvæði Veitna, skipuleggur og fylgir eftir verkþáttum, þar á meðal bráðabilunum, endurnýjunum og heimlögnum og stýrir faglegum ytri og innri samskiptum á sínu svæði. Viðkomandi fær m.a. tækifæri til að nýta fagþekkingu sína til að veita ráðgjöf til viðskiptavina út frá skilmálum Veitna og taka ákvarðanir um úrbætur eftir viðbragð og bilanir og þannig framlengja líftíma tenginga í dreifikerfinu og því er gerð krafa um rafmagnsþekkingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og fylgja eftir verkþáttum, þar á meðal heimlögnum, bráðabilunum og endurnýjunum.
  • Veita ráðgjöf og tryggja viðeigandi lausnir
  • Stjórna faglegum samskiptum við ytri og innri viðskiptavini
  • Tryggja að öryggis staðlar séu uppfylltir
  • Viðhalda, uppfæra og nýta kerfi fyrir samskipti og verkefnastýringu
Við leitum að fólki með
  • Ríka þjónustulund og góða samskiptafærni
  • Frumkvæði og hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í teymi
  • Skipulagshæfni, útsjónarsemi og færni í að fylgja eftir verkefnum
  • Menntun í rafvirkjun
Hvers vegna Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á framsýni, hagsýni, heiðarleika og frumkvæði. Við trúum á að fjölbreytileiki leiði til betri árangurs og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um, óháð því hvort þau haka í öll boxin.

Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Umsóknarfrestur er til 13. mars 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurveig Erla Þrastardóttir, leiðtogi Þjónustu, [email protected].

Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RafveituvirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar