
Orkubú Vestfjarða ohf
Í boði er áhugavert starfsumhverfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum hjá traustu fyrirtæki og er hópurinn samheldinn og metnaður mikill.
Áratuga reynsla
Orkubú Vestfjarða ohf. býr að áratuga reynslu við virkjun vatnsafls og jarðhita og dreifingu og sölu raforku. Fyrirtækið á og rekur orkuver og raforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjum til raforkuflutnings og raforkudreifingar, jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.
Fyrirtækið var stofnað þann 26. ágúst 1977 og var þá sameignarfélag sveitarfélaga á Vestfjörðum og ríkisins. Fyrirtækið hóf formlega starfsemi þann 1. janúar 1978. Orkubú Vestfjarða ohf. var stofnað á grundvelli laga sem samþykkt voru á Alþingi 2001.
Frá árinu 2002 hefur Orkubú Vestfjarða ohf. verið að fullu í eigu ríkisins.
7 vatnsaflsvirkjanir
Fyrirtækið rekur 7 vatnsaflsvirkjanir, sem framleiða u.þ.b. 90.000 MWh á ári, sem er um 60% af orkunotkun Vestfjarða. Flutningskerfi Orkubúsins samanstendur af 1,036 km löngum rafmagnslínum og jarðstrengjum og er viðhaldið af starfsmönnum þess.
Gæðakerfi
Fyrirtækið starfrækir gæðastjórnunarkerfi sem samræmist kröfum í ISO 9001: 2015. Fyrirtækið var fyrsta rafveitan, sem fékk viðurkennt öryggisstjórnunarkerfi vottað af Mannvirkjastofnun árið 1999. Fyrirtækið rekur einnig innra eftirlitskerfi með sölumælum samkvæmt heimild frá Neytendastofu.
Starfsmenn og skrifstofur
Starfsmenn Orkubúsins eru um 70 talsins á þremur starfssvæðum og þjónusta þeir dreifikerfi fyrir Vestfirði og sölukerfi, sem nær til landsins alls. Aðalskrifstofa er á Ísafirði og svæðisskrifstofur á Hólmavík og Patreksfirði.
Stjórn Orkubúsins
Stjórn Orkubúsins er skipuð 5 mönnum, sem kjörnir eru á aðalfundi fyrirtækisins. Orkubússtjóri veitir fyrirtækinu forstöðu og er framkvæmdastjóri þess. Starfsemi Orkubúsins er skipt upp í orkusvið, veitusvið og fjármálasvið auk eftirlitsdeildar.

Verkefnastjóri gæðamála
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða drífandi verkefnisstjóra gæðamála. Markmið og verkefni tengjast gæðamálum fyrirtækisins og að tryggja að lögum og reglum er varða gæðamál sé fylgt eftir. Orkubúið er með vottuð gæðakerfi, innra eftirlit og öryggisstjórnun. Starfsaðstaða er á aðalskrifstofu á Ísafirði.
Orkubú Vestfjarða er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Um fullt starf er að ræða.
Ráðið verður í starfið óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón á gæðamálum iso 9001, 27001 og 85
- Ritstjórn gæðahandbókar
- þróun og viðhald gæðakerfis og gæðahandbókar
- Framkvæmd innri úttekta og umsjón með umbótaverkefnum
- Samskipti við viðskiptavini og starfsfólk
- Upplýsingagjöf og eftirfylgni er varðar gæðamál
- Þróun verkferla
- Samskipti við eftirlitsaðila
- Fræðsla og þjálfun til starfsfólks í gæðamálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu kostur
- Reynsla af vottuðum stjórnunarkerfum kostur
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Góð tölvukunnátta
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
Styrkur til heilsueflingar
Auglýsing birt24. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stakkanes 138704, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁhættugreiningHönnun ferlaHreint sakavottorðInnleiðing ferlaMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookMicrosoft PowerPointMicrosoft WordÖkuréttindiSnyrtimennskaTölvuöryggiUmsýsla gæðakerfa
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri orku og grænna lausna
Íslandsstofa

Verkefnastjóri stafrænnar þróunar
Intellecta

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Sérfræðingur í gæðamálum / Quality Specialist
ChitoCare medical

Verkefnastjóri stærri uppbyggingarverkefna
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri

Verkstjóri á Útflutnings- og hráefnissviði óskast
Íslenska gámafélagið ehf.

Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

SKJALASTJÓRI
atNorth

Gæðastjóri - Matvælaframleiðsla (Kjúklingaafurðir)
Matfugl

Verkefnastjóri fasteigna og bifreiða hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan