Héðinn
Héðinn
Héðinn

Verkefnastjóri / Vélahönnuður

Héðinn hf. leitar að lausnamiðuðum og metnaðarfullum verkefnastjóra / vélahönnuði til að styrkja öfluga tæknideild fyrirtækisins.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem þú tekur ábyrgð á verkefnum frá upphafi til enda. Þú sinnir tilboðsgerð og samskiptum við viðskiptavini, hannar og þróar vélabúnað og fylgir verkefnum eftir þannig að þau standist bæði tíma- og kostnaðarsáætlanir.

Í starfinu felst náið samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins og viðskiptavini. Þú færð verkefni í þínar hendur, greinir þarfir, útfærir tæknilegar lausnir, teiknar og tryggir faglega og skilvirka framkvæmd.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill takast á við spennandi og fjölbreytt verkefni hjá framsæknu og rótgrónu iðnfyrirtæki með yfir 100 ára reynslu í þjónustu við íslenskan iðnað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við viðskiptavini og þátttaka í tilboðsgerð
  • Verkefnastýring frá upphafi til verkloka
  • Hönnun véla og búnaðar fyrir iðnaðarlausnir
  • Teiknivinna í Inventor, Autocad, 3D plant og sambærilegum forritum
  • Val á efnum og eftirfylgni með aðföngum.
  • Þátttaka í handbókargerð og gæðamálum.
  • Samstarf við raftækni- og framleiðsludeildir Héðins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. vélaverkfræði eða tæknifræði.
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Reynsla af hönnun og teiknivinnu
  • Lausnamiðuð hugsun, nákvæmni og skipulagshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði, norðurlandamál er kostur.
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.
  • Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.
  • Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu. 
  • Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AutoCADPathCreated with Sketch.IllustratorPathCreated with Sketch.TeikningPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar