

Sérfræðingur í vörustýringu (e. Allocation Specialist)
66°North leitar að metnaðarfullum og framsæknum sérfræðingi í öflugt teymi vörustýringar. Við leitum að aðila með brennandi áhuga á gögnum og skilvirkni, sem jafnframt hefur ríkan áhuga á hönnun og tísku og nýtur þess að starfa í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.
Ef þú hefur sterka, lausnamiðaða hugsun og sýnir frumkvæði í að bæta ferla og takast á við krefjandi verkefni með gagnadrifinni nálgun, þá gætir þú verið rétti aðilinn.
Tilgangur starfsins er að tryggja hagkvæmt vöruflæði og markvissa birgðastýringu fyrir vöruhús og verslanir 66°North. Hlutverkið krefst náins samstarfs og reglulegra samskipta við verslanir, ásamt gagnagreiningu og stöðugri þróun að endurbótum á ferlum sem styðja við skilvirkni, framúrskarandi þjónustu og sölu.
-
Dreifing og eftirfylgni birgða í vöruhús og verslanir
-
Greining gagna til að styðja við ákvarðanatöku og fyrir áætlanagerð
-
Innleiðing sjálfvirkra ferla og hagræðingalausna sem auka skilvirkni og nákvæmni
-
Regluleg skýrslugerð og uppfærsla á lykilmælikvörðum
-
Náið samstarf við vörustýringu, framleiðslu, verslanir og önnur lykilteymi
-
Virk þátttaka í þróun verklags og innleiðingu nýrra lausna
-
Sterk tenging við verslanateymi til að fylgjast með framsetningu, vöruflæði og þörfum verslana
-
Háskólamenntun í verkfræði, tölfræði, upplýsingatækni eða sambærilegu sviði
-
Mjög góð færni í Excel; reynsla af VBA, SQL, Power Query, Power BI eða sambærilegum verkfærum
-
Frumkvæði og lausnarmiðuð nálgun til að bæta ferla og leysa vandamál
-
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
-
Góð samskiptahæfni
-
Áhugi á tísku og hönnun
Íslenska
Enska










