Icelandair
Icelandair
Icelandair

Report Analyst

Tækniþjónusta Icelandair ber ábyrgð á rekstri og eftirliti með viðhaldi flugvélaflota Icelandair. Þar starfar öflugur og metnaðarfullur hópur sérfræðinga með öryggi, áreiðanleika og vönduð vinnubrögð að leiðarljósi.

Við leitum að metnaðarfullum og kraftmiklum Gagnagreinanda (Report Analyst) til starfa hjá Technical Software Governance deild innan Tækniþjónustu Icelandair. Deildin er staðsett í viðhaldstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli og samanstendur af átta sérfræðingum.

Technical Software Governance ber ábyrgð á þjálfun, stöðugum umbótum og notendaþjónustu á helstu kerfum innan sviðs Tækniþjónustu. Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við sérfræðinga deildarinnar, Maintenance vöruteymið og gagnasérfræðingum á öðrum sviðum með það að markmiði að betrumbæta og einfalda dagleg störf starfsfólks Tækniþjónustu Icelandair.

Áhersla er lögð á að tryggja að kerfi og gögn séu áreiðanleg, vel uppsett og auðveldlega aðgengileg til að styðja við skilvirka ákvarðanatöku og daglega starfsemi.

Starfsstöðin er bæði í viðhaldsskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli sem og á aðalskrifstofum félagsins í Hafnarfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hanna og forrita skýrslur
  • Forrita gagnavaktanir til að tryggja gæði gagna
  • Greina gögn þegar upp koma vandamál
  • Skrifa tilfallandi kóða til gagnaöflunar
  • Prófanir á skýrslum við uppfærslur á kerfinu
  • Ráðgjöf og önnur samvinna við hagsmunaaðila
  • Náin samvinna við vöruteymi og gagnasérfræðinga
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla í fluggeiranum er kostur
  • Áhugi á betrumbótum á ferlum og vinnubrögðum.
  • Góð tölvufærni og áhugi á upplýsingatækni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Þekking á SQL og gagnagrunnum
  • Þekking á PowerBI
  • Þekking á Python/R eða öðru forritunarmáli
  • Þekking á mælaborðum er kostur
  • Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á teymisvinnu
  • Jákvæðni og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Fálkavöllur 27, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar