
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Leiðtogi í þróun gervigreindarlausna
Gervigreindarsetur Advania leitar að aðila til að leiða þróun í gervigreindarlausnum Advania. Markmið Gervigreindarseturs Advania er að ýta undir verðmætasköpun á Íslandi með notkun gervigreindar. Advania hefur þegar úr fjölda gervigreindarlausna að moða og starfið því mjög fjölbreytt. Þetta er einstakt tækifæri til að koma að hraðri þróun á sviði gervigreindar og móta tæknilegt umhverfi til framtíðar.
Hlutverk þitt
- Innleiðing og ráðgjöf á gervigreindarlausnum Advania
- Vinna náið með viðskiptavinum og teymum innan Advania við þróun á frumgerðum og lausnum sem skapa virði með gervigreind
- Starfa þvert á Advania samsteypuna í Norður Evrópu í því að koma lausnum samsteypunnar á markað á Íslandi
- Þróun á gervigreindarlausnum fyrir íslenskan markað með Azure foundry, Nvidia AI Enterprise, Oracle og sambærilegum tólum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegum greinum.
- Þekking og reynsla af hugbúnaðarþróun (API, samþættingar, prófanir, CI/CD o.s.frv.).
- Þekking og reynsla af þróun gervigreindarlausna (t.d. LLM, RAG, MCP).
- Reynsla af gagnavinnslu fyrir gervigreind er kostur (t.d. ETL, gagnalíkön, vektoragrunnar, skjalavinnsla).
- Þekking á Prompt engineering er kostur.
- Þekking og reynsla af NVIDIA AI Enterprise (t.d. NeMo, NIM) er kostur.
- Þekking og reynsla af microservice architecture og Kubernetes er kostur.
- Þekking og reynsla af Azure AI Foundry er kostur.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Gervigreind
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica

Viðskiptastjóri – Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið
Íslandsbanki

Verkefnastjóri á deild byggingarmála
Umhverfis- og skipulagssvið

Fjölbreytt sumarstörf hjá COWI Ísland
COWI

Vilt þú gæta að öryggi fjarskipta í sumar?
Míla hf

Spennandi sumarstörf háskólanema
Norðurál

Forstöðumaður upplýsingatækni
Íslensk fjárfesting

Hefur þú áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og umbótum?
Arion banki

Sumarstarf fyrir nema í tölvunar- eða hugbúnaðarverkfræði
APRÓ

Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi
Viska sjóðir ehf.

Framendaforritari í þróunarteymi
dk hugbúnaður ehf.

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf