
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Hefur þú áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og umbótum?
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstakling í teymið rekstur og þróun á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Rekstur og þróun annast fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki, sem og stoðþjónustu við önnur teymi sem sinna fyrirtækjum innan bankans. Helstu markmið teymisins eru að auka skilvirkni í þjónustu við fyrirtæki, stuðla að þróun stafrænna lausna og auka ánægju og tryggð viðskiptavina.
Um er að ræða nýtt spennandi starf sem felst meðal annars sinna gagnagreiningum, miðla niðurstöðum og taka þátt í frekari innleiðingu á gervigreindar- og sjálfvirknitólum fyrir sviðið, í nánu samstarfi við upplýsingatæknisvið bankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með starfsfólki þvert á sviðið til að skilja þarfir og tryggja aðgengi að gögnum sem nýtast í ákvarðanatöku.
- Greina stór gagnasöfn og umbreyta gögnum til að styðja við rekstur sviðsins og veita hagnýta innsýn fyrir stjórnendur og teymi.
- Fylgjast með þróun gervigreindar, vélrænu námi og öðrum tækniþróunum sem tengjast gagnavinnslu.
- Greining og útfærsla sjálfvirkra ferla (RPA), þróun erindreka (e. AI agents) og annarra lausna sem auka skilvirkni og einfalda verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði eða öðru sem nýtist í starfi.
- Áhugi og þekking á gagnagreiningu, líkanagerð og forritun (SQL, Python, R eða sambærilegt).
- Þekking á Power BI eða öðrum greiningartólum.
- Þekking á sjálfvirknitólum, t.d. Power platform suite (Power Automate, Copilot Studio) og Blue Prism, er kostur.
- Þekking á rekstri fyrirtækja, lestri ársreikninga og lykiltölum kostur.
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
GervigreindMicrosoft Power PlatformPower BISQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
Sambærileg störf (12)

Spennandi sumarstörf háskólanema
Norðurál

Forstöðumaður upplýsingatækni
Íslensk fjárfesting

Sumarstarf fyrir nema í tölvunar- eða hugbúnaðarverkfræði
APRÓ

Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi
Viska sjóðir ehf.

Framendaforritari í þróunarteymi
dk hugbúnaður ehf.

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Verkefnastjóri stafrænna kerfa
Landsnet hf.

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun
Umhverfis- og skipulagssvið

Viltu starfa í upplýsingatækni?
OK

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri
Arctic Hydro