

Forritarar á upplýsingatæknisvið
Arion leitar að einstaklingum með brennandi áhuga á að ganga til liðs við öflug teymi sem vinna að framúrskarandi lausnum sem snerta líf viðskiptavina á hverjum degi. Við leitum að starfsfólki sem býr yfir frumkvæði og hefur löngun til að vinna í nútímalegu og fjölbreyttu tækniumhverfi. Arion leggur áherslu á að starfsfólk vaxi í starfi og hafi tækifæri við að bæta stöðugt við sig nýrri þekkingu.
Við leitum að forriturum sem skilgreina sig sem backend eða full-stack. Hugbúnaðarþróun Arion vinnur m.a. með .NET, MS SQL, Redis, RabbitMQ, NodeJS og React, til útgáfu á Windows eða Linux, hýst í skýjasamhæfðu umhverfi innan eigin gagnavera eða í skýi, með áherslu á örar útgáfur og sjálfvirknivæðingu á öllum stigum lífsferils.
-
Þróun á hugbúnaði í samræmi við greiningu og hönnun
-
Kóðarýni hjá öðrum forriturum
-
Greining á villum og úrlausn þeirra
-
Smíði og framkvæmd sjálfvirkra prófana sem og sjálfvirkra útgáfuferla
-
Gerð tæknilýsinga og rekstrarhandbóka
-
Háskólamenntun á sviði tölvunar-, kerfis-, verkfræði eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
-
Þekking á.NET umhverfi, Git og MS SQL æskileg
-
Hæfni til að vinna sjálfstætt með áherslu á nákvæmni
-
Góðir samskiptahæfileikar og áhugi á teymisvinnu
-
Innsýn í greiðsluvirkni, greiðslukort og fjármálastarfsemi kostur.











