Arion banki
Arion banki
Arion banki

Sölustjóri á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði

Við leitum að metnaðarfullum og kraftmiklum aðila í starf sölustjóra á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið. Sölustjóri ber ábyrgð á að leiða sölustarf fyrirtækjasviðs, taka virkan þátt í markaðsstarfi og kynningar á nýjum og núverandi vörum. Viðkomandi mun starfa náið með teymisfélögum, markaðsdeild og öðrum lykilaðilum innan bankans og ber jafnframt ábyrgð á sölumarkmiðum sviðsins.

Sölustjóri er hluti af teyminu þróun og vörustýring á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Helstu markmið teymisins eru að auka skilvirkni í þjónustu við fyrirtæki, stuðla að þróun stafrænna lausna og auka ánægju og tryggð viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á sölustefnu, söluáætlunum og greiningu á þörfum fyrirtækjaviðskiptavina, ásamt því að finna framtíðartækifæri og styrkja notkun á vörum og lausnum fyrirtækjasviðs.
  • Stýra söluferli, verðlagningu, tilboðsgerð og eftirfylgni til að tryggja að sölumarkmið náist og að lausnir bankans skili viðskiptavinum ávinningi.
  • Leiða herferðir og söluaðgerðir í samstarfi við markaðsdeild og önnur teymi, þar á meðal skipulag, framkvæmd og árangursmælingar.
  • Vinna þvert á svið, m.a. með ábyrgðaraðilum vöruþróunar, markaðsdeild og þjónustuteymum, til að tryggja góða þjónustu og árangur í sölustarfi.
  • Fylgjast með þróun, samkeppni og tækifærum á markaði fyrir fyrirtækjalausnir og leggja til umbætur og nýjar nálganir í sölu og þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sölu, sölustýringu eða samskiptum við stærri fyrirtækjaviðskiptavini
  • Þekking og reynsla á fjármálamarkaði og vöruúrvali er kostur.
  • Framúrskarandi samskipta- og samvinnufærni.
  • Drifkraftur, fumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar