APRÓ
APRÓ
APRÓ

Hugbúnaðarsérfræðingur – tækifæri til að sérhæfa sig

APRÓ leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum hugbúnaðarsérfræðingi til að taka þátt í viðhaldi og þróun kerfa sem gegna lykilhlutverki fyrir einn af okkar stærstu og áreiðanlegustu viðskiptavinum. Um er að ræða samfélagslega mikilvægt verkefni þar sem nákvæmni, traust og ending eru í forgrunni.

Þú verður hluti af samheldnu og reynslumiklu teymi sem styður hvert annað í daglegu starfi og deilir þekkingu af örlæti. Við leggjum áherslu á vandaða innleiðingu, trausta innviði og notendavæna hönnun og viljum bæta við okkur öflugum liðsfélaga sem vill vaxa með verkefnunum.

Við notum meðal annars PL/SQL og Delphi í þessum kerfum. Við vitum að þetta er ekki tækni sem allir hafa unnið með og það er í góðu lagi. Ef þú hefur a.m.k. tveggja ára reynslu af hugbúnaðarþróun og brennur fyrir því að læra nýja hluti, þá kennum við þér það sem þarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og viðhald á hugbúnaðarkerfum með áherslu á stöðugleika og nýsköpun

  • Þátttaka í endurskrift og nútímavæðingu eldri kerfa, mögulega með nýtingu gervigreindar
  • Hönnun og uppbygging upplýsingakerfa fyrir stærri stofnanir og fyrirtæki

  • Sjálfvirknivæðing vinnuferla og stuðningur við stafræna umbreytingu

  • Skjölun og uppsetning á innviðum sem tryggja rekstraröryggi

  • Þátttaka í teymisvinnu og samráð við viðskiptavini og samstarfsaðila

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • A.m.k. þriggja ára reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Áhugi á yfirgripsmiklum gagnagrunnum og flóknum kerfum
  • Vilji og geta til að tileinka sér nýja tækni

  • Sterk greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og drifkraftur

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli

Fríðindi í starfi
  • Kaupréttaráætlun
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Árlegur heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
  • Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar