Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Gagnasérfræðingur hjá Vegagerðinni

Vegagerðin leitar að framsýnum og öflugum gagnasérfræðingi sem býr yfir brennandi áhuga á að taka þátt í gagnauppbyggingu hjá Vegagerðinni. Upplýsingatækni og gagnaþjónusta tilheyrir fjármálasviði og starfa 13 starfsmenn á deildinni. Gögn gegna mikilvægu hlutverki innan Vegagerðarinnar og eru gagnamál eitt af sex áhersluatriðum í stefnu stofnunarinnar 2024-2028. Í stefnunni eru sett markmið um að bæta aðgengi og miðlun gagna ásamt eflingu greininga.

Framundan eru flókin og krefjandi verkefni sem miða að faglegri stýringu gagna, bættri nýtingu þeirra og auðveldara aðgengi m.a. með uppbyggingu vöruhúss gagna og tryggja þannig að breytt gagnauppbygging leiði til þess að taka fyrstu skrefin í vélnámi og gervigreind.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppbygging á vöruhúsi gagna og tengdum lykilverkefnum. 
  • Smíði og viðhald á gagnapípum. 
  • Uppsetning á gagnagrunnum á borð við Oracle, MSSQL og PostgreSql. 
  • Samræming á gagnavinnslu og gæði gagna. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Brennandi áhugi á mæligögnum og öðrum gögnum. 
  • Framúrskarandi skilningur á gagnauppbyggingu og skýr sýn á hvernig hún getur nýst í opinberri þjónustu.
  • Þekking og reynsla á Python forritun.
  • Hæfni til að nýta gögn og mælikvarða til ákvarðanatöku og eftirfylgni. 
  • Nám tengt gagnavinnslu og forritun er kostur.
  • Þekking á öðrum forritunarmálum er kostur. 
  • Nýsköpunarhugsun og vilji til að prófa nýjar lausnir og nálganir. 
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar