
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Kerfisfræðingur í notendaþjónustu hjá Vegagerðinni
Hefur þú gaman af því að leysa vandamál eða hefur þú brennandi áhuga á tölvum og tækni?
Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Vegagerðin leitar að liðsauka í teymi notendaþjónustu á deild upplýsingatækni og gagnaþjónustu á starfstöð okkar í Garðabæ. Upplýsingatækni og gagnaþjónusta tilheyrir fjármálasviði og starfa 13 starfsmenn á deildinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í notendaþjónustu við starfsfólk Vegagerðarinnar, viðveru á þjónustuborði ásamt fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri upplýsingakerfa stofnunarinnar svo sem:
- Umsjón með útstöðvum, uppsetningar og viðhald.
- Uppsetning og rekstur upplýsingakerfa.
- Samskipti við starfsfólk Vegagerðarinnar um allt land.
- Þátttaka í umbótaverkefnum og teymisvinnu innan deildar sem og utan.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mikil þjónustulund.
- Kerfisfræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Mjög góð þekking á Microsoft skýjalausnum.
- Góð þekking á Windows Server rekstri.
- Þekking á linux og gagnagrunnum er kostur.
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Skipulögð vinnubrögð og góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (8)

Gagnasérfræðingur hjá Vegagerðinni
Vegagerðin

Starfsmaður á þjónustustöðinni í Ólafsvík
Vegagerðin

Starfsmaður á þjónustustöðinni í Búðardal
Vegagerðin

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Sumarstörf - þjónustustöðvar á Vestursvæði
Vegagerðin

Sumarstörf - þjónustustöðvar á Norðursvæði
Vegagerðin

Sumarstörf - þjónustustöð Suðursvæði
Vegagerðin

Sumarstörf - þjónustustöðvar á Austursvæði
Vegagerðin

