Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Viltu starfa sem sérfræðingur í skýjalausnum hjá Wise?

Wise leitar að Cloud Specialist (M365 & Azure) í öflugt teymi

Ert þú kraftmikill og sjálfstæður einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna í hóp og hefur góða innsýn inn í kerfisrekstur og þarfir viðskiptavina?

Wise leitar að öflugum sérfræðingi með ástríðu fyrir upplýsingatækni og kerfisrekstri til að starfa með okkur að áframhaldandi uppbyggingu á skýjaumhverfum viðskiptavina okkar.

Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með nýjustu tækni í Microsoft vistkerfinu, veita faglega ráðgjöf og tryggja að rekstur og þjónusta sé ávallt í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á Microsoft skýjaþjónustum (M365 og Azure) hjá viðskiptavinum og Wise.
  • Virk þátttaka í hönnun og þróun nýrra lausna til að tryggja að Wise bjóði ávallt það nýjasta og besta í Microsoft lausnum.
  • Lausnamiðuð ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini.
  • Umsjón með eftirfylgni verkefna þar sem fagmennska og lipurð í lausnaleit er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 3+ ára reynsla af IT rekstri með áherslu á Microsoft skýjaþjónustur.
  • Góð þekking á Microsoft 365, Entra ID, Intune, Defender og Azure.
  • Microsoft vottanir (kostur):
    • Administrator Expert (MS-102)
    • Endpoint Administrator (MD-102).
    • Information Security (SC-401)
    • Identity and Access Administrator (SC-300).
    • Azure Administrator Associate (AZ-104)
    • Windows Server Hybrid Administrator (AZ-800/801).
    • DevOps Engineer Expert (AZ-400).
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi þjónustulund.
  • Geta til að vinna í hóp og miðla upplýsingum á skýran hátt á íslensku og ensku.
Auglýsing birt10. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Kerfishönnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar