Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Mótaðu framtíð þjónustu hjá Wise: Ert þú okkar nýi þjónustustjóri?

Wise er á spennandi tímamótum og leitum nú að þjónustustjóra sem vill taka sterka þjónustu og gera hana enn betri með skýrri stefnu, samhæfðum ferlum og markvissri þjónustu þróun.

Nýr þjónustustjóri mótar ferla, byggir upp þjónustumenningu og tryggir að viðskiptavinir Wise fái ávallt framúrskarandi þjónustu, sama hvaða lausnir þeir nota.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú berð heildarábyrgð á þjónustuafhendingu Wise og hefur greiðan aðgang að æðstu stjórnendum félagsins.

Helstu áherslur eru:

  • Byggja upp og leiða þjónustuupplifun.
  • Innleiða og styrkja þjónustuferla.
  • Knýja fram stöðugar umbætur á ánægju viðskiptavina. 
  • Vera brú milli tækniteymis og viðskiptavina.
  • Tryggja skýr og fagleg samskipti.
Menntunar- og hæfniskröfur

Hverju við leitum að

  • Traust reynsla af IT Service Management og ITIL aðferðafræði.
  • Reynsla af því að leiða uppbyggingu á þjónustuupplifun og knýja fram breytingar í þjónustumenningu.
  • Hæfni í gagnagreiningu og árangursmælingum.
  • Framúrskarandi samskiptafærni sem byggir upp traust bæði hjá viðskiptavinum og innri teymum.
  • Hafa yfirsýn og skilgreina forgangsröðun í krefjandi og hröðu starfsumhverfi.

 

Auglýsing birt10. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar