Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Vaktstjóri þjónustu og upplifunar (e. Service & Experience Manager)

Laugarás Lagoon leitar að jákvæðum, skipulögðum og drífandi vaktstjóra sem hefur ánægju af því að leiða fólk, skapa sterka liðsheild og tryggja framúrskarandi upplifun gesta. Starfið felur í sér yfirumsjón með rekstri á vakt í baðlóni Laugarás Lagoon og á veitingastaðnum Ylju. Vaktstjóri gegnir lykilhlutverki í að halda utan um flæði, þjónustu, gæði og öryggi í allri starfseminni á vaktinni. Unnið er samkvæmt 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.

Vaktstjóri er fyrirmynd í þjónustu og leiðtogahlutverki, vinnur náið með starfsfólki í framlínu og tryggir að andrúmsloft staðarins einkennist af hlýju, fagmennsku, skipulagi og samheldni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með daglegum rekstri á vakt í baðlóni og á veitingastaðnum Ylju

  • Leiða, styðja og hvetja starfsfólk og efla sterka liðsheild

  • Vera fyrirmynd í þjónustu, fagmennsku og jákvæðu leiðtogahlutverki

  • Tryggja framúrskarandi upplifun gesta í öruggu og snyrtilegu umhverfi

  • Hafa yfirsýn yfir flæði gesta og stýra álagstímum af yfirvegun

  • Tryggja eftirfylgni með öryggisferlum og viðbrögðum á vakt

  • Samræma þjónustu og starfsemi milli deilda

  • Taka virkan þátt í ráðningum, móttöku og þjálfun nýs starfsfólks í samstarfi við aðra stjórnendur

  • Koma með hugmyndir að bættri þjónustu og þróun upplifunar

  • Taka virkan þátt í mótun jákvæðrar menningar, skipulags og starfsanda

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vaktstjórn, yfirumsjón eða stjórnun teyma er kostur

  • Reynsla af veitingarekstri er kostur

  • Reynsla eða þekking á öryggis- og viðbragðsferlum er kostur

  • Tækniþekking og hæfni til að vinna með bókunar-, kassa- og rekstrarkerfi er kostur

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli

  • Jákvætt viðhorf og sterk þjónustulund

  • Skipulögð vinnubrögð, leiðtogahæfni og hæfni til að efla liðsheild

  • Rík ábyrgðartilfinning og meðvitund um öryggi gesta og starfsfólks

  • Hæfni til að vinna í hröðu og síbreytilegu starfsumhverfi

  • Lausnamiðuð hugsun, yfirvegun og sveigjanleiki

  • Fagmennska í samskiptum og ákvarðanatöku

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu glænýs vinnustaðar í einstöku umhverfi á Suðurlandi

  • Mikilvægt hlutverk innan fyrirtækisins með raunveruleg áhrif á mótun starfseminnar

  • Líflegt og vaxandi starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar

  • Tækifæri til starfsþróunar

  • Hádegis- og kvöldverður á vinnutíma
  • Aðgangur að upplifun fyrirtækisins utan vinnutíma

  • Önnur tilfallandi fríðindi

Auglýsing birt7. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skálholtsvegur 1, Laugarási
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar