Raftákn
Raftákn
Raftákn

Sérfræðingur í hönnun stjórnkerfa

Við erum að leita að þrautseigum, sjálfstæðum og úrræðagóðum einstaklingum til að vinna að lausnum verkefna á iðnaðarsviði á skrifstofu félagsins í Kópavogi. Hjá Raftákni starfa 32 manns að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á Íslandi og erlendis. Viðskiptavinir Raftákns eru m.a. opinberir aðilar, orku- og veitufyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, stóriðjufyrirtæki og hátæknifyrirtæki. Raftákn er framsækið fyrirtæki sem leitast við að bjóða viðskiptavinum uppá bestu lausnirnar hverju sinni og veita framúrskarandi þjónustu.

Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa með starfsstöðvar í Kópavogi og á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og þróun stjórnkerfa og stýrirása
  • Forritun stýrivéla, jaðarbúnaðar, þjarka, notendaviðmóts og upplýsingakerfa
  • Uppsetning,  gangsetning og viðhald sjálfvirkra kerfa
  • Þjónusta við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í rafmagnsverk- eða tæknifræði, hátækniverkfræði eða tölvunarfræði.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
  • Rík þjónustulund, samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.
  • Geta til vinna sjálfstætt og eiga í beinum samskiptum við viðskiptavini.
  • Reynsla af vinnu við hönnun og forritun stjórnkerfa er mikill kostur.
  • Reynsla og þekking á forritun búnaðar í iðnaði, veitukerfum eða virkjunum er kostur.
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar