Arion banki
Arion banki
Arion banki

Delivery Lead á upplýsingatæknisviði

Við leitum að Delivery Lead á upplýsingatæknisviði Arion banka. Viðkomandi mun tilheyra teyminu Verkefnastjórnun og innkaup og leiða daglegt vinnulag og afhendingu hugbúnaðarlausna innan þróunarteymis. Við viljum ráða einstakling sem hefur brennandi áhuga á og reynslu af Agile vinnuumhverfi, útgáfuferlum og því að hjálpa teymum að skila stöðugu og góðu virði til viðskiptavina í gegnum árangursríkt samstarf og samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða Agile vinnulag innan teymis og stýra daglegum Agile athöfnum t.d. daglegir fundir, skipulagning spretta og retrospective.
  • Stýra útgáfuferlum og tryggja að afhending hugbúnaðar sé í samræmi við gæðakröfur og tímaáætlanir
  • Fylgjast með umhverfi teymis þar sem teymisheilsa, álag og framvinda verkefna er tryggt
  • Tryggja skýrt upplýsingaflæði milli teymis og hagsmunaaðila um stöðu og framgang verkefna
  • Stuðla að stöðugum umbótum í ferlum og vinnubrögðum teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur og skipulagshæfni
  • Yfirgripsmikil þekking á Agile ferlum og reynsla af vinnu í Agile umhverfi teyma
  • Þekking á útgáfuferlum og grunnatriðum í tæknilegum ferlum hugbúnaðarþróunar
  • 3–5 ára starfsreynsla af sambærilegum störfum
  • Þekking á vinnulagi og ferlum innan fjármálageirans er kostur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegt, er æskilegt
  • Gott vald á rituðu og mæltu máli, bæði íslensku og ensku
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar