
Míla hf
Míla er virkur þátttakandi í uppbyggingu framtíðarinnar. Á næstunni munum við sjá nýja og spennandi lausnir vaxa og dafna á Alnetinu. Gervigreind, sýndarheimar, heildrænar fundarlausnir, fjarkennsla og heilsa eru allt svið sem koma til að eflast samhliða öflugum tengingum. Við þurfum á brautryðjendum framtíðar að halda til að styrkja stoðir fjarskipta Íslands.

Sérfræðingur í bókhaldi og launavinnslu
Hefur þú gaman af fjölbreyttum verkefnum og vilt starfa í öflugu og faglegu umhverfi? Við erum að leita að nýjum samstarfsfélaga í nýtt stöðugildi sem mun meðal annars sinna bókhaldi og launavinnslu.
Við leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna í öflugu og samheldnu teymi þar sem samvinna er í fyrirrúmi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla og afstemming bókhalds, önnur almenn bókhaldsvinna
- Umsjón og ábyrgð á launabókhaldi
- Þróun og umbætur á bókhalds- og launatengdum ferlum
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði fjármála og reksturs
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking og reynsla af bókhaldsstörfum
- Reynsla af launavinnslu er kostur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta m.a. af bókhaldskerfum og Excel
- Nákvæmni, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna með og greina töluleg gögn
Fríðindi í starfi
- 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæðum
- 🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
- 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
- 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
- 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
- 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billiard-borði
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurMicrosoft ExcelSamviskusemiSAPSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Bókari óskast
Volcano Trails

Delivery Lead á upplýsingatæknisviði
Arion banki

Sérfræðingur á endurskoðunarsvið Enor ehf.
Enor ehf

Skrifstofustjóri
Datera ehf.

Starf í fjárhagsbókhaldi Landspítala
Landspítali

Bókari
Ljóstvistar ehf.

Öflugur bókari óskast til HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn

Við erum að ráða í fjármáladeild Deloitte
Deloitte

Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi
Viska sjóðir ehf.

Viðskiptastjóri
Terra Einingar

Bókari
Vínbúðin