Datera ehf.
Datera ehf.
Datera ehf.

Skrifstofustjóri

Datera leitar að skipulögðum og metnaðarfullum skrifstofustjóra með reynslu af bókhaldi, launavinnslu og reikningagerð. Um er að ræða lykilhlutverk í daglegum rekstri fyrirtækisins og náið samstarf við framkvæmdastjóra og bókhaldsstofu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla og umsýsla starfsmannatengdra mála

  • Umsjón með tímaskráningum starfsmanna

  • Reikningagerð og eftirfylgni innheimtu

  • Samskipti við bókhaldsstofu

  • Umsjón með rekstrartölum og kostnaðaryfirliti

  • Aðstoð við þróun og einföldun innri ferla í rekstri og skrifstofuhaldi

  • Almenn skrifstofuumsýsla og innkaup

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af launavinnslu, bókhaldi og reikningagerð

  • Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Nákvæmni og góð samskiptahæfni

  • Lausnamiðuð nálgun og gott auga fyrir skipulagi

Um Datera

Datera er þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar og birtinga. Við sérhæfum okkur í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum, leitarvélaherferðum og sérhæfðri birtingaráðgjöf. Við hámörkum árangur og nýtingu markaðsfjár viðskiptavina okkar með þekkingu, innsæi og nýjustu tæknilausnum á sviði stafrænnar markaðssetningar.

Að vinna hjá Datera
  • Lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í miðbæ Reykjavíkur

  • Greiddur hádegismatur þrjá daga vikunnar

  • Ávextir, snarl og frískandi drykkir alla daga

  • Virkt fræðslustarf

  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi

  • Öflugt félagslíf

Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar