

Framkvæmdastjóri – BSRB
BSRB leitar að metnaðarfullum og öflugum framkvæmdastjóra til að leiða og þróa daglega starfsemi bandalagsins í nánu samstarfi við kjörna forystu. Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á hagsmunabaráttu og hæfni til að starfa í kraftmiklu og framsæknu umhverfi. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og reynir á frumkvæði, leiðtogahæfni og skipulagshæfileika.
Meginhlutverk BSRB felst í hagsmunagæslu fyrir félagsfólk aðildarfélaganna gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum að því meginmarkmiði stuðla að jöfnum tækifærum fjölbreyttra hópa og aukinni velferð. Helstu málaflokkar sem einkenna daglegt starf bandalagsins eru á sviði vinnumarkaðs- og velferðarmála, almannaþjónustu og starfsfólks hennar, húsnæðismála, heilbrigðismála, jafnrétti og inngildingar, réttlátra umskipta, lífeyrismála og menntamála.
Framkvæmdastjóri og formaður BSRB vinna náið saman að markmiðum samkvæmt stefnumótun bandalagsins og bera ábyrgð á starfsemi þess. Þá eru mannauðsmál og ábyrgð á rekstri á hendi framkvæmdastjóra.
- Fylgja eftir ákvörðunum þings BSRB, aðalfundar, stjórnar og formannaráðs BSRB
- Ábyrgð á mannauðsmálum á skrifstofu bandalagsins
- Samskipti og samstarf við aðildarfélög BSRB, aðra aðila vinnumarkaðarins, stjórnvöld og erlend samtök launafólks í samráði við formann
- Stuðla að þróun, nýjungum og eflingu starfsemi bandalagsins
- Fulltrúi bandalagsins í ýmsum nefndum og ráðum
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf æskilegt
- Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking eða reynsla af stjórnun og rekstri
- Þekking eða reynsla á sviði vinnumarkaðsmála, félags- og efnahagsmála
- Þekking og metnaður fyrir starfsemi félagasamtaka og skilningur á málefnum verkalýðshreyfingarinnar og hugsjónum hennar
- Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í ensku og kostur að hafa góð tök á einu Norðurlandamáli
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti
Íslenska
Enska
Danska










