
Bókari
Verne óskar eftir að ráða bókara til að sjá um fjárhagsbókhald, um er að ræða tímabundna stöðu í eitt ár. Starfsstöð er í Keflavík með möguleika á fjarvinnu 1-2 daga í viku. Um er að ræða tímabundna stöðu til 1 árs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Daglegt fjárhagsbókhald, tryggja að það sé í samræmi við reikningsskila staðla, skattareglur og stefnu samstæðu
- Yfirsýn fjárhagsferla og bókhalds
- Undirbúa dagbókarfærslur, mánaðarlegar afstemmingar og lokafærslur
- Þátttaka i mánaðaruppgjörum, ársuppgjörum og endurskoðun
- Sjá um bókhald milli tengdra félaga og afstemmingar
- Virðisaukaskattsafstemmingar og skýrslugerð á Íslandi og í Bretlandi
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi bókara, helst í alþjóðlegu umhverfi
- Góð færni í ensku
- Góð kunnátta í bókhaldskerfum (t.d. Business Central, D365) og MS Excel
- Nákvæm vinnubrögð og gott auga fyrir smáatriðum
- Skipulagshæfni og geta til að sinna mörgum verkefnum samtímis
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
Það sem við bjóðum uppá:
- Samkeppnishæf laun
- Möguleiki á fjarvinnu (1–2 dagar á viku)
- Frír hádegisverður á staðnum
Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.
Enska
Íslenska










