

Sérfræðingur í umhverfismálum hafsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings hjá Umhverfis- og orkustofnun. Starfið felst í verndun hafs og stranda gegn mengun og athöfnum sem geta stofnað lífríki og heilbrigði manna í hættu. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi verkefni sem varða m.a. framkvæmd laga og alþjóðasamninga um mengunarvarnir skipa sem tengjast loftslagsmálum, orkuskiptum og nýsköpunarverkefnum. Sérfræðingurinn mun einnig starfa í viðbragðshópi vegna bráðamengunar á hafi. Starfið felur í sér þátttöku í alþjóðasamstarfi um umhverfismál bæði hjá Siglingastofnun Evrópu (EMSA) og Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) auk nánu samstarfi við innlendar fagstofnanir og hagaðila.
Sérfræðingurinn mun starfa í teymi hafs- og vatns á sviði umhverfisgæða þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, framsýni og árangur í þverfaglegri samvinnu.
- Málefni er varða varnir gegn mengun frá skipum
- Viðbrögð við bráðamengun hafs og strand
- Verkefni er tengjast mengun og athöfnum á hafsvæðum
- Erlent og innlent samstarf sem tengist málefnum hafsins
- Háskólamenntun á sviði náttúruvísinda, verkfræði/ tæknifræði eða sambærileg menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og reynsla úr alþjóðastarfi er kostur
- Þekking á skipum og umhverfismálefnum hafsins er kostur
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og geta til að sýna frumkvæði
- Hæfni til að greina og rita texta sem varða tæknileg málefni
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
- Stafræn hæfni
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
- Haldbær þekking á einu Norðurlandamáli er kostur
Íslenska
Enska










