

Sérfræðingur í gæðastjórnun
KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum sérhæfða ráðgjöf og lausnir á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skattskila, lögfræði og viðskiptaráðgjafar. Á Íslandi starfa um 250 sérfræðingar hjá KPMG á 12 starfsstöðvum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.
Sérfræðingur í gæðastjórnun
Við leitum að reyndum og öflugum sérfræðingi í gæðastjórnun til að leiða og bera ábyrgð á eftirfylgni og verkstýringu tengdri innleiðingu og rekstri alþjóðlega gæðastaðalsins ISQM1 ásamt þátttöku í öðrum verkefnum tengdum áhættu-, öryggis- og gæðamálum. Starfið er hluti af áhættuteymi KPMG og felur í sér náið samstarf við stjórnendur og aðra hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkstýring og eftirfylgni með daglegum verkferlum og innbyggðum eftirlitsþáttum í samræmi við kröfur ISQM1.
- Greining og mat á fylgni fyrirtækisins við staðalinn ásamt gerð úrbóta- og aðgerðaráætlana.
- Samskipti og samvinna við innri og ytri úttektaraðila.
- Þátttaka í innri verkefnum áhættuteymis og framþróun verkferla.
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Haldbær reynsla af gæðastjórnun, innri verkferlum og gæðaeftirliti.
- Reynsla af ytri endurskoðun og/eða annarri staðfestingarvinnu, upplýsingatækniferlum eða innri endurskoðun.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, hæfni til að greina flókin verkefni og forgangsraða.
- Góð færni í samskiptum og teymisvinnu.
- Góð enskukunnátta er skilyrði og reynsla af alþjóðlegu stafsumhverfi er kostur.
Um er að ræða spennandi starf í öflugu og alþjóðlegu fyrirtæki. Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.
Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.
Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af og starfa með leiðandi sérfræðingum hjá KPMG hérlendis og erlendis.
- Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
- KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
- Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).
Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Helgadóttir meðeigandi ([email protected]) eða Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum ([email protected])
Íslenska
Enska










