
K16
K16 ehf er framsækinn byggingaverktaki sem hefur byggt upp traust og fagmennsku í íslenskum byggingariðnaði. Fyrirtækið sérhæfir sig í viðhaldi og nýbyggingum, með áherslu á vandaða framkvæmd og sjálfbærar lausnir. Fyrirtækið hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki og heldur áfram að styrkja stöðu sína með vexti og nýsköpun.

Innkaupastjóri
K16 ehf. leitar að reynslumiklum og drífandi innkaupastjóra sem mun gegna lykilhlutverki í rekstri fyrirtækisins. Starfið hefur bein áhrif á kostnað, gæði og framgang verkefna og felur í sér ábyrgð á innkaupum byggingarefnis, búnaðar og þjónustu fyrir verkefni K16, bæði innanlands og erlendis frá. Innkaupastjóri vinnur náið með verkefnastjórum og verkstjórum og tekur virkan þátt í undirbúningi og stuðningi við tilboðsgerð í útboðum. Starfið krefst góðrar yfirsýnar, skipulags, faglegra samskipta og hæfni til að taka upplýstar ákvarðanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á skipulagi, framkvæmd og eftirfylgni innkaupa K16
- Samskipti og samningar við innlenda og erlenda birgja
- Verðkannanir, tilboðsgreining og samningasgerð
- Undirbúningur og eftirfylgni innkaupaáætlana í tengslum við tilboðsgerð og verkefni
- Stuðningur við tilboðsgerð í útboðum, m.a. með öflun tilboða, kostnaðargreiningu og samanburði valkosta
- Eftirlit með kostnaði, gæðum og afhendingum
- Þróun og umbætur á innkaupaferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, ásamt framúrskarandi samskiptahæfni
- Reynsla af innkaupum, birgðastýringu og samningsgerð
- Reynsla af byggingariðnaði er kostur
- Góð greiningarhæfni, viðskiptalegt innsæi og nákvæmni í vinnubrögðum
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Geta til að vinna sjálfstætt, skipulega og undir álagi
- Mjög góð tölvukunnátta
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dragháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri stafrænna kerfa
Landsnet hf.

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Sérfræðingur í umhverfismálum hafsins
Umhverfis- og orkustofnun

Meiraprófsbílstjóri á Akureyri
Samskip

Meiraprófsbílstjóri á Egilsstöðum
Samskip

Sérfræðingur í gæðastjórnun
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur í hönnun stjórnkerfa
Raftákn

Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi
Viska sjóðir ehf.

Viltu beisla vindinn? Verkefnastjóri í þróun vindorku
Landsvirkjun

Verkefnastjóri í rekstri og viðhaldi vindorku
Landsvirkjun

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Verkstjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.