Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Sérfræðingur í vatnamálum og samskiptastjóri LIFE Icewater

Hjá Umhverfis- og orkustofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í teymi hafs og vatns. Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði vatnsverndar í samræmi við lög um stjórn vatnamála og stýrir vinnu við gerð vatnaáætlunar Íslands. Um er að ræða fullt starf.

Stofnunin hlaut nýverið styrk frá LIFE áætlun Evrópusambandsins til verkefnisins LIFE Icewater, sem snýr að verndun vatns og innleiðingu vatnaáætlunar hér á landi.

Starfið er tvíþætt. Í fyrsta lagi felur starfið í sér þátttöku í faglegri vinnu á sviði vatnamála innan teymis hafs og vatns, t.d. framfylgd aðgerða í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar, undirbúning við gerð endurskoðaðrar vatnaáætlunar og samskipti við hagaðila, samstarfsaðila og almenning. Í öðru lagi verkefnastjórn á einum af vinnupökkum LIFE Icewater verkefnisins sem fjallar um uppbyggingu á þekkingu, getu og miðlun, meðal annars með því að styðja við samskipti og fræðslu um LIFE Icewater verkefnið. Starfið felur jafnframt í sér miðlun á framvindu og afrakstri verkefnisins til almennings auk samskipta við þátttakendur og hagaliða verkefnisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra vinnupakka um samskipti, fræðslu og uppbyggingu þekkingar innan Icewater og tengdra verkefna.
  • Taka þátt í faglegu starfi sem sérfræðingur innan teymi hafs og vatns við framkvæmd vatnaáætlunar og stjórn vatnamála.
  • Hafa yfirsýn yfir samskipti og miðlun Icewater verkefnisins í heild sinni.
  • Leiða uppbyggingu þekkingar innan Icewater, m.a. með því að safna, vinna og miðla faglegum upplýsingum um vatn og vatnamál.
  • Stýra undirbúningi og framkvæmd vinnustofa og annarra fræðsluviðburða á sviði vatnamála.
  • Hafa umsjón með skýrslugerð til styrkveitanda Icewater sem varða miðlun, fræðslu og þekkingaruppbyggingu.
  • Veita ráðgjöf og aðstoð við samstarfsaðila Icewater vegna kynningar-, fræðslu- og útgáfumála sem tengjast vatnamálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði raunvísinda sem nýtist í starfi s.s. líffræði eða umhverfis- og auðlindafræði
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
  • Áhugi á verndun vatns og hafs
  • Reynsla og hæfni á sviði fræðslu og miðlunar
  • Starfsreynsla þar sem reynt hefur á textaskrif, ritstjórn, vefumsjón og miðlun efnis er æskileg
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti er nauðsynleg
  • Reynsla og/eða menntun á sviði vísindamiðlunar er kostur
  • Reynsla af viðburðastjórnun er kostur
  • Reynsla af evrópskum rannsóknaverkefnum er kostu
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar