Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Yfirverkstjóri í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar

Kópavogsbær óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf yfirverkstjóra í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi hefur verkstjórn á sviði umhirðu og viðhalds á götum, bæjarlandi, lóðum og leiksvæðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast stjórnun verkefna útivinnuflokka
  • Annast stýringu vorhreinsunar, sópun gatna og gangstétta
  • Umsjón með yfirborðsmerkingu gatna
  • Yfirfer vinnuskýrslur frá flokkstjórum og stendur skil á þeim til verkbókhalds
  • Fylgist með að starfsmenn þjónustumiðstöðvar og verktakar gæti fyllsta öryggis, merkingar séu réttar og endurskinsfatnaður og persónuhlífar séu ávallt í fullkomnu lagi
  • Tryggir að allur tækjakostur og tækjabúnaður sé ávallt í lagi 
  • Yfirferð reikninga frá verktökum og sannreynir magntölur og einingaverð
  • Er öryggisvörður þjónustumiðstöðvar og sinnir sem slíkur allri skýrslugerð til vinnueftirlits
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistararéttindi í iðngrein eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.

  • Haldbær reynsla af verkefnastjórn

  • Reynsla af jarðvegs- og/eða malbiksframkvæmdum

  • Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Almenn ökuréttindi og vinnuvélapróf kostur

  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins. 

Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Askalind 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar