Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfskraftur/Félagsliði í sérhæfða dagþjálfun Roðasala

Roðasalir er sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma sem staðsett er í Salahverfinu í Kópavogi og er rekið af velferðarsviði Kópavogs. Markmið þjónustunnar er að efla virkni, viðhalda færni og styrkja félagstengsl. Með þjónustunni er hægt að lengja dvöl einstaklinga heima, rjúfa einangrun og styðja við aðstandendur.

Við óskum eftir því að ráða til okkar drífandi og öflugan starfskraft eða félagsliða sem hefur áhuga á félagsstarfi aldraðra. Um er að ræða tímabundið starf til 1 árs með möguleika á framhaldi. Unnið er í dagvinnu frá kl. 08:00-16:00, alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umönnun og aðhlynning
  • Stuðningur við félagsstarf
  • Stuðningur við tómstundaiðju
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla í umönnun eða sambærilegum störfum
  • Félagsliðamenntun er kostur 
  • Góð íslenskukunnátta
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Þolinmæði og skilningur
  • Góð skipulagshæfni
Fríðindi í starfi

Frítt í sund á vegum Kópavogsbæjar og líkamsræktarstyrkur

Auglýsing birt20. janúar 2026
Umsóknarfrestur10. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Roðasalir 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar