Atmonia ehf.
Atmonia ehf.
Atmonia ehf.

Atmonia leitar að verkefnisstjóra

Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki á sviði djúptækni.

Við leitum að lausnamiðaðri manneskju í hlutastarf verkefnastjóra og aðstoðarmanns framkvæmdastjóra. Verkefnin verða fjölbreytt. Helstu verkefni felast meðal annars í að hafa umsjón með og samhæfa tímalínur verkefna, auðvelda samskipti milli hagsmunaaðila og tryggja að áfangar verkefnia náist. Halda utan um verkferla og tryggja samræmi við markmið fyrirtækisins. Starfið krefst náins samstarfs við teymismeðlimi til að viðhalda skilvirkni verkefna og að tryggja að tímaáætlun sé fylgt.

Hæfni í verkefnastjórnun, þar á meðal áætlanagerð og skipulagningu er krafa. Reynsla af samhæfingu evrópskra verkefna eins og Horizon Europe og Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC) er hentug en ekki krafa. Sérþekking í úttekt- og endurskoðunarferlum til að tryggja að gæða- og frammistöðustöðlum sé fylgt kemur sér vel. Þekking á sviði gæðastjórnunar er einnig hentug. Samskipta- og samvinnuhæfni til samskipta við teymi Atmonia en einnig við alþjóðlega samstarfsaðila er mikilvæg.

Starfið er auglýst sem hlutastarf með möguleika á að auka hlutfall starfs og miklum möguleikum á vexti í starfi samhliða vexti félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastjórnun rannsóknar og þróunarverkefna, (samskipti við samstarfsaðila í verkefnum, skýrsluskrif, bókhald og skipulagning viðburða.)

Samstarf við bókara um bókhald og utanumhald um bókhald

Aðstoða framkvæmdastjóra

Samskipti við samstarfsaðila, bæði innanlands sem alþjóðlega. 

Utanumhald um samfélagsmiðla félagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

BSc eða BA próf sem hentar starfi, hentugt  ef umsækjandi er með grunn í efna. eðlis eða verkfræði, en ekki krafa. 

Menntun í verkefnastjórnun er mikilvæg.

Fríðindi í starfi

Sveigjanleiki í starfi, möguleiki á að vinna að hluta til að heiman. 

Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Grunnfærni
Staðsetning
Árleynir 8, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfaPathCreated with Sketch.VefumsjónPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Viðburðastjórnun
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar