Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks

Skrifstofa málefna fatlaðs fólks á velferðarsviði Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnastjóra laust til umsóknar.

Skrifstofan sinnir allri framkvæmd þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík, stjórnsýsluverkefnum og leiðandi hlutverki við þróun og nýsköpun í málaflokknum.

Á skrifstofunni er lögð áhersla á teymisvinnu og viljum við ráða til starfa einstakling sem þrífst á krefjandi verkefnum, skynjar taktinn í samfélaginu og elskar breytingar. Til að stuðla að farsælum árangri er mikið lagt upp úr skilvirkni og nýtingu tölfræði og greininga við mótun tillagna.

Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur stefnumótunar, vinnsla tillagna og greinargerða fyrir velferðarráð Reykjavíkurborgar
  • Stjórnsýsluleg verkefni í málaflokki fatlaðs fólks
  • Leiðandi í verkefnum sem tengjast þróun og nýsköpun
  • Umsjón með tölfræðiupplýsingum er varða málaflokk fatlaðs fólks
  • Umsjón og utanumhald með samningum er varða þjónustu við fatlað fólk
  • Samráð við fatlað fólk og hagsmunaaðila
  • Samstarf við skipulagseiningar innan sem utan borgar
  • Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk og stjórnendur í málaflokki fatlaðs fólks
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og framhaldsmenntun æskileg
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni og góð greiningarhæfni
  • Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Krefjandi og skemmtileg verkefni
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamning
  • Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
Auglýsing birt11. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar